Endurskoðun

Fagleg endurskoðunarþjónusta sem skapar yfirsýn, traust og skýrari ákvarðanir

Endurskoðun sem skapar traust og yfirsýn

Fjárhúsið veitir faglega og persónulega þjónustu á sviði endurskoðunar, reikningsskila og tengdrar ráðgjafar. Við leggjum áherslu á vönduð vinnubrögð, skýra framsetningu og góða samvinnu við viðskiptavini.

Endurskoðunarvinnan miðar að því að auka traust á reikningsskilum, draga fram þau atriði sem skipta máli og veita stjórnendum, eigendum og öðrum hagsmunaaðilum betri yfirsýn yfir reksturinn.

Meðal þjónustu á sviði endurskoðunar og tengdra verkefna er:

  • Endurskoðun ársreikninga
  • Könnun reikningsskila
  • Gerð ársreikninga og annarra reikningsskila
  • Önnur staðfestingarvinna
  • Sérstakar úttektir og greinargerðir
  • Yfirferð á ferlum og innra eftirliti
  • Ráðgjöf tengd reikningsskilum, rekstri og fjármálum

PB

Pétur Örn Björnsson

Löggiltur endurskoðandi

AG

Aníta Guðlaugsdóttir

Rekstrarstjóri / MAcc reikningshald og endurskoðun